Vonlaust?

Er það alveg orðið vonlaust fyrir þá sem standa í sjávarútvegi að halda uppi vörnum fyrir sín fyrirtæki og sinn rekstur? Búið er að ausa þá skömmum svo árum skiptir fyrir að snúa því sem áður var ótrúlega mistækur rekstur fyrir land og þjóð í arðbæran iðnað sem skilaði þjóðinni góðum nettó - tekjum. Þannig hefur grunnurinn verið lagður að árásinni á atvinnugreinina nú. Þessi aðferð þekkist úr öðrum löndum og mun blóðugri dæmum. Fræinu er sáð í huga fólks, að því hlúð með áróðri og síðan er látið til skarar skríða.

Halda menn að tímasetningin á húsleit hjá Samherja - sem kannski var tilefnislaus í þokkabót) hafi verið tilviljun? Nei - Nú geta þessir ,,glæpamenn" bara haldið kjafti.

Nú á að þjóðnýta sjávarútvegsfyrirtækin - beita eignaupptöku á atvinnuréttindin - jafnvel þótt heildarhagsmunum sé betur borgið í núverandi kerfi - og allt í ,,þágu þjóðarinnar". Rétt eins og þegar sjálfseignabændur voru reknir af jörðum sínum og kýrnar hirtar af þeim, á sínum tíma í Sovíetríkjunum, í þágu Moskvubúa. Gafst það vel þar?

Rökin sem notuð eru, eru að við gengishrunið gangi sjávarútvegurinn svo vel. Má þá ferðamannaiðnaðurinn búast við því að vera næstur? Hvenær verður ofurskattur lagður á ferðamannareksturinn? Um hann gilda alveg sömu lögmál.

Líklegt er að varnir sjávarútvegsfyrirtækja verði slegnar úr höndum þeirra með áframhaldandi rógi og aðdróttunum og rekstrarskilyrði í sjávarútvegi gerð óviðunnandi - til bölvunar fyrir land og þjóð.

Kommúnisminn er svo langt frá því að vera dauður! 


mbl.is Niðurstöður Deloitte ekki keyptar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúkk

Þá er því reddað

Mikið er ég feginn


mbl.is VG boðar frið á norðurslóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En fjölga í einhverju ráðuneytinu á móti...

Svona er forgangsröðun velferðarstjórnarinnar.

Það er auðvitað engin velferð að beina fjármunum til baka út á land þaðan sem þeir komu - það er langferð.


mbl.is Loka heilsugæslunni á Hellu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðisástin í Evrópusambandinu

Nú sjáum við enn eitt dæmið um lýðræðisástina í Evrópusambandinu. Berlusconi segir nokkur vel valin orð um Evruna og hann er hrakinn frá og einhver prófessor er dreginn upp á dekk til að mynda ríkisstjórn sem á að hlýða tilskipununum frá Brussel. Þessi maður hefur ekki einu sinni verið kjörinn á þing af þjóðinni sem hann á nú að stýra - eða fjarstýrast.

Þetta er kannski ekki innrás Frakka eða Þjóðverja inn í Ítalíu - en minnir þetta ekki svolítið á yfirtöku.

Um Berlusconi er sjálfsagt hægt að segja margt, og hann hefur sjálfur sagt margt sem hefur fengið fólk til að hrista hausinn, en ætli hinir höfðingjarnir kunni ekki bara betur að fela það sem þeim kemur til hugar. Hins vegar veit ég ekki um neinn sem hefur getað haldið saman starfhæfum ríkisstjórnum á Ítalíu í jafn langan tíma. Og það eitt og sér er nokkurs virði. 


mbl.is Monti falin stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rödd skynseminnar

Ég er ánægður með Einar K. Guðfinnson. Hann hefur staðið sig vel upp á síðkastið. Hann á hrós skilið fyrir að þora að ganga gegn óskynsamlegum órum um þjóðnýtingu auðlinda, þrátt fyrir að vinstri blokkin öskri þar á blóð og úthrópi þá sem starfa við sjávarútveg sem glæpamenn. Það er ánægjulegt að einhver hafi nennu í sér til að verja sveitarfélögin úti á landi.

Það er reyndar hrollvekjandi að það var sömu áróðursaðferðum beitt í Sovétríkjum Stalíns þegar var verið að réttlæta blóðuga eignaupptöku hjá bændum. Borgarbúum í  Moskvu var talin trú um að bændurnir og landeigendurnir stæðu gegn uppgangi Sovétríkjanna, bústofn þeirra væri sameign þjóðarinnar og því væri réttlætanlegt að hirða af þeim allt - bústofninn líka - til að sjá Moskvubúum fyrir fæðu.

Þar til ekkert var eftir - fyrir neinn!


mbl.is Gjaldtaka dregur úr arðbærni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnusköpun við seðlaprentun?

Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvernig eigi að töfra fram alla þessa peninga. Manni skilst að skuldastaða flestra þessarra ríkja sé nú þegar mjög slæm. Hver, hvenær og hvernig á að borga - ef við gefum okkur að Kína og önnur utanaðkomandi ríki láni?

Ofan í kaupið stefna Þjóðverjar að því að hætta orkuframleiðslu með kjarnorku, sem hefur í för með sér að þeir verða að kaupa orkuna á annan hátt -Hafa þeir efni á því, auk þess að hlaupa undir bagga með öðrum evru - þjóðum?

Líklegra þykir mér að þetta verði að stærstum hluta fjármagnað með seðlaprentun. Sem getur aðeins þýtt verðbólgu.

Mig grunar að framundan sé meiri verðbólga en mín kynslóð hefur séð á sinni æfi.


mbl.is Björgunarsjóður yfir billjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabanki? Töfrabrögð?

Hafa ekki allir tekið eftir því hvernig gengi krónunnar hefur smátt og smátt verið að láta undan? Er nú 162 á móti evru.

Af því ég hef nú gaman af samsæriskenningum ætla ég að varpa einni fram hér:

Seðlabankinn, með Má Guðmundsson (já sinna í IceSave) í broddi fylkingar, er viljandi að láta gengið síga niður til þess að hægt verði að sýna fram á jákvæð áhrif á gengið ef Icesave frumvarpið verður samþykkt. Rökstuðningur: Seðlabankinn er að handstýra genginu - það er staðreynd.

Trikkið: það sama og stundum notað er í verslunum fyrir útsölur, verðinu ýtt aðeins upp til að gera tilboðin svo girnilegri í prósentum talið.

Ég er viss um að ef Icesave verður samþykkt á gengið eftir að styrkjast lítillega, upp að því marki sem það var fyrir þrem vikum síðan - eftir það stendur það í stað, eins og Seðlabankinn á að reyna að láta það gera.

Abrakadabra og simsalabimm!

Segjum NEI við Icesave!


mbl.is Ísland stefnir í greiðsluþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurvinnslan

Segið svo að þau séu ekki umhverfisvæn í Samfó.

Nú hefur Jóhanna sleppt því að eyða bleki og blaði fyrir ræðuna og notar bara gamla frá því í fyrra.

Maður bíður bara eftir því að Gylfi stígi fram og segi að Ísland verði Kúba norðursins.

Nú hefur komið í ljós að samningurinn er ekki einu sinni frágenginn eða fullkomlega undirritaður. Það eitt og sér á að vera nóg til að segja NEI.

Vísum þessu út í hafsauga.

NEI við ICESAVE!


mbl.is Menn verða að hafa kjark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstöðuleysi

Jóhanna Sigurðardóttir kvartar yfir samstöðuleysi.

Hún kallar það samstöðuleysi þegar stjórnarandstaðan vill ekki standa saman með stjórninni um handónýta stefnu, skemmdarverk á skattkerfinu og svik við fullveldi Íslands.

Jóhanna Sigurðardóttir kennir samstöðuleysi stjórnar og stjórnarandstöðu um það að ekkert gangi við að koma stefnumálum ríkisstjórnarinnar áfram -

Þetta er nú meiri gráturinn - Almennileg ríkisstjórn á ekki að þurfa samstöðu við stjórnarandstöðu. Almennileg ríkisstjórn, með stuðning meirihluta þingmanna á að geta komið sínum málum áfram óháð stjórnarandstöðunni.

Þetta er ónýt ríkisstjórn!


mbl.is Samstöðuleysi tefur endurreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt líf?

Það er greinilega brjálað að gera hjá ráðamönnum þjóðarinnar. Á tímum sem þessum er nauðsynlegt að beita öllum mögulegum aðferðum til að rífa upp efnahag þjóðarbúsins og blása landsmönnum von og kraft í brjóst.

ZZZZZ         544713

Það er viðurkennd aðferð til farsældar að láta sig dreyma fyrir góðum aflabrögðum og betri tíð. Þeir félagar Össur og Ögmundur hljóta að hafa leitað í smiðju þeirra Þórs og Daníels í Nýju lífi.

180px-Nytt_lif_dvd Í myndinni var allt gert til að framkalla góða drauma.

Leikstjóri myndarinnar er nú genginn í VG.

 

Ójá!

ZZZZZZZZZ!

 

 


mbl.is Dottaði á borgarafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband